Fréttir


28.3.2018

Staðfesting á aðalskipulagi Breiðdalshrepps vegna aðveitustöðvar Rarik á Breiðdalsvík

Skipulagsstofnun staðfesti þann 26. mars 2018 breytingu á Aðalskipulagi Breiðdalshrepps 1983-2003, sem samþykkt var í sveitarstjórn Breiðdalshrepps 9. febrúar 2018.

Í breytingunni felst að bætt er við iðnaðarlóð (112-I) fyrir aðveitustöð Rarik á hluta svæðis vestan byggðarinnar í Breiðdalsvík sem áður var afmarkað til skipulags síðar.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.