Fréttir


28.3.2018

Staðfesting á aðalskipulagi Húnaþings vestra vegna masturs og tækjahúss neyðarlínunnar á Bláhæð, Holtavörðuheiði

Skipulagsstofnun staðfesti þann 26. mars 2018, breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings  vestra 2014-2026, sem samþykkt var í sveitarstjórn, 8. mars 2018.

Í breytingunni felst að heimiluð er staðsetning fjarskiptamasturs og tækjahúss fyrir Neyðarlínuna á Bláhæð nærri hringveginum á Holtavörðuheiði.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.