Fréttir


7.12.2017

Staðfesting á Aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2017-2029

Skipulagsstofnun staðfesti þann 7. desember sl. Aðalskipulag Hveragerðisbæjar 2017-2029 sem samþykkt var í bæjarstjórn 12. október 2017.

Um er að ræða heildarendurskoðun og við gildistöku nýs aðalskipulags fellur úr gildi Aðalskipulag Hveragerðisbæjar 2005-2017 ásamt síðari breytingum.

Málsmeðferð var samkvæmt 30. – 32. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast nýja aðalskipulagið í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.