Fréttir


2.1.2019

Staðfesting á Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2017 - 2029

Skipulagsstofnun staðfesti 21. desember 2018 Aðalskipulag Kjósarhrepps 2017 - 2029, sem samþykkt var í sveitarstjórn 4. desember 2018.

Við gildistöku endurskoðaðs aðalskipulags fellur úr gildi Aðalskipulag Kjósarhrepps 2005 - 2017 ásamt síðari breytingum.

Málsmeðferð var samkvæmt 30. - 32. gr. skipulagslaga.

 

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.