Fréttir


3.10.2017

Staðfesting á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna Árbæjarhellis 2

Skipulagsstofnun staðfesti 2. október 2017 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022, sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. september 2017.

Breytingin felst í breyttri landnotkun á 3 ha svæði í landi Árbæjarhellis 2 þar sem landbúnaðarsvæði er breytt í verslunar- og þjónustusvæði (Þ15) fyrir ferðaþjónustu.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi.