Fréttir


19.7.2017

Staðfesting á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2015 - 2030

Skipulagsstofnun hefur staðfest aðalskipulag

Skipulagsstofnun staðfesti þann 19. júlí 2017 Aðalskipulag Reykjanesbæjar 2015-2030, sem samþykkt var í bæjarstjórn Reykjanesbæjar 20. júní 2017.

Um er að ræða heildarendurskoðun á aðalskipulagi Reykjanesbæjar.

Málsmeðferð var samkvæmt 30. - 32. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar, þegar það hefur öðlast gildi.