Fréttir


  • Aðalskipulag Snæfellsbæjar

21.6.2018

Staðfesting á Aðalskipulagi Snæfellsbæjar 2015-2031

Skipulagsstofnun staðfesti 20. júní 2018 Aðalskipulag Snæfellsbæjar 2015-2031 sem samþykkt var í bæjarstjórn 11. apríl 2018.

Málsmeðferð var samkvæmt 30. - 32. gr. skipulagslaga. Við gildistöku Aðalskipulags Snæfellsbæjar 2015-2031 fellur úr gildi Aðalskipulag Snæfellsbæjar 1995-2015 sem staðfest var 8. júlí 1997.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.