Fréttir


17.5.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akraneskaupsstaðar vegna Grenja, hafnarsvæði H3

Skipulagsstofnun staðfesti, 17. maí 2019, breytingu á Aðalskipulagi Akraneskaupsstaðar 2005-2017 sem samþykkt var í sveitarstjórn 9. apríl 2019.

Í breytingunni felst að að breytt er skipulagsákvæðum fyrir hafnarsvæði H3 til samræmis við þá uppbyggingu og atvinnuþróun sem þar er. Á svæðinu er gert ráð fyrir skipasmíði, skipaviðgerðum, hafnsækinni starfsemi, iðnaðarframleiðslu og þjónustu við sjávarútveg, fiskiðnað og annan matvælaiðnað.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.