Fréttir


9.11.2017

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrar vegna rammahluta fyrir Oddeyri

Skipulagsstofnun staðfesti þann 9. nóvember 2017 breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 vegna rammahluta fyrir Oddeyri, sem samþykkt var í bæjarstjórn 5. september 2017.

Í breytingunni felst heildstæð stefnumótun um þróun byggðar á Oddeyri, þ.m.t. um landnotkun og þéttingu byggðar á einstökum reitum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar hún hefur öðlast gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.