Fréttir


22.3.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrar vegna tilfærslu á legu Hólasandslínu

Skipulagsstofnun staðfesti, 21. mars 2019, breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 5. mars 2019.

Í breytingunni felst tilfærsla á Hólasandslínu 3 þar sem jarðstrengurinn liggur sunnan við flugbrautina á Akureyrarflugvelli.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.