Fréttir


18.3.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Árborgar fyrir íbúðarbyggð á Léni

Skipulagsstofnun staðfesti 8. mars 2019 breytingu á Aðalskipulagi Árborgar 2010-2030, sem samþykkt var í sveitarstjórn 5. júlí 2018.

Í breytingunni felst að landnotkun á lóðinni Lén, 0,6 ha svæði sem skilgreint hefur verið sem frístundabyggð og opið svæði til sérstakra nota er breytt í íbúðarbyggð.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.