Fréttir


11.8.2016

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Biskupstungnahrepps, Brekka, frístundabyggð

Skipulagsstofnun staðfesti þann 6. maí 2016 breytingu á aðalskipulagi Biskupstungnahrepps sem samþykkt var í sveitarstjórn 7. apríl 2016.

Í breytingunni felst að landnotkun á 7 ha svæði í landi Brekku er breytt úr landbúnaðarsvæði í frístundabyggð. Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. skipulagslaga. Breytingin hefur þegar öðlast gildi.

Hægt er nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar.