Fréttir


28.3.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Fjarðabyggðar, grjótnám á Kappeyri í Fáskrúðsfirði

Skipulagsstofnun staðfesti þann 21. mars 2018 breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, sem samþykkt var í bæjarstjórn 15. febrúar 2018.

Norðan Vattarnesvegar (nr. 955)  í landi Kappeyrar í Fáskrúðsfirð er landbúnaðarsvæði breytt í efnistökusvæði þar sem fyrirhugað er 49.000 m³ grjótnám.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.