Fréttir


9.11.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps vegna frístundabyggðar í landi Syðri-Brúar

Skipulagsstofnun staðfesti, 19. október 2018, breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020, sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. maí 2018.

Breytingin felst í að frístundabyggð F14a, Sólbrekka í landi Syðri-Brúar, stækkar um 2,5 ha til vesturs en opið svæði til sérstakra nota , golfvöllur, minnkar sem því nemur.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin öðlaðist gildi 2. nóvember sl. með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda og er hægt að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar.