Fréttir


16.2.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar vegna Víkurbrautar 34

Skipulagsstofnun staðfesti þann 16. febrúar 2018 breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2010-2030, sem samþykkt var í bæjarstjórn Grindavíkur 29. ágúst 2017.

Í breytingunni felst að landnotkun fyrir Víkurbraut 34 breytist úr svæði fyrir samfélagsþjónustu í svæði fyrir verslun og þjónustu.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.