Fréttir


7.1.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna Hamraneslína

Skipulagsstofnun staðfesti 7. janúar 2019 breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 12.  desember 2018.

Í breytingunni felst tímabundin færsla á Hamraneslínum 1 og 2 suður fyrir íbúðarbyggð í Hamraneshverfi og Skarðshlíðarhverfi.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.