Fréttir


23.4.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Húnaþings vestra vegna landnotkunar við Garðaveg, Hvammstanga

Skipulagsstofnun staðfesti, 17. apríl 2019, breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. mars 2019.

Í breytingunni felst að íbúðarbyggð ÍB-2 er felld úr skipulaginu og verður hluti af nærliggjandi opnu svæði OP-2 fyrir utan 0,02 ha svæði sem er sameinað leikskólalóð á landnotkunarreit S-5.

Málsmeðferð var óveruleg breyting samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.