Fréttir


28.11.2016

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Húnaþings vestra, verslunar- og þjónustusvæði á Hvammstanga

Skipulagsstofnun staðfesti þann 27. október 2016 breytingu á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026, sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. október 2016.
Í breytingunni felst að hluti opins svæðis við Norðurbraut á Hvammstanga verður verslunar- og þjónustusvæði. Svæðið er um 1,2 ha að stærð.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar.