Fréttir


16.4.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Kópavogs vegna Furugrundar 3

Skipulagsstofnun staðfesti 12. apríl 2018 breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024, sem samþykkt var í bæjarstjórn 23. janúar 2018.

Í breytingunni felst að reit fyrir verslun og þjónustu VÞ-5 í Furugrund 3, er breytt í íbúðarbyggð. 

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.