Fréttir


28.6.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar vegna Dals í landi Dallands

Skipulagsstofnun staðfesti, 28. júní 2019, breytingu á Aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 29. maí 2019.

Í breytingunni felst að frístundabyggð 526-F á tveimur skikum vestan Dals í landi Dallands, samtals 2,1 ha, er breytt í landbúnaðarsvæði 526-L. Á svæðinu er stefnt að því að reisa íbúðarhús/starfsmannahús í tengslum við landbúnaðarstarfsemi.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.