Fréttir


13.9.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar vegna stækkunar athafnasvæðis í Flugumýri/Desjamýri

Skipulagsstofnun staðfesti 12. september 2018 breytingu á Aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 22. ágúst 2018.

Í breytingunni felst að athafnasvæði 411-A er stækkað um 5 ha og íbúðarbyggð 407-Íb er minnkuð um 3,6 ha.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.