Fréttir


7.11.2017

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar vegna verslunar- og þjónustusvæðis við Skarhólabraut

Skipulagsstofnun staðfesti þann 2. nóvember 2017 breytingu á Aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030, sem samþykkt var í sveitarstjórn 18. október 2017.

Í breytingunni felst að 0,64 ha af 1,6 ha á svæði 409-S verði breytt úr stofnanasvæði í verslunar- og þjónustusvæði 418-VÞ.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar, þegar hún hefur öðlast gildi.