Fréttir


5.7.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna landnotkunar í landi Brúna 1

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. júlí 2019, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. júní 2019.

Í breytingunni felst að landnotkun á 1,6 ha spildu í landi Brúna 1, er breytt úr landbúnaðarlandi í svæði undir verslun og þjónustu VÞ-239.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.