Fréttir


20.9.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar vegna íbúðarsvæðis ÍB34 Hafnargata/Njarðarbraut

Skipulagsstofnun staðfesti, 19. september 2018, breytingu á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2015-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 4. september 2018.

Í breytingunni felst að íbúðum er fjölgað úr 80 í 102 á íbúðarsvæði ÍB34 Hafnargata/Njarðarbraut.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.