Fréttir


8.8.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur, Hraunbær – Bæjarháls

Skipulagsstofnun staðfesti þann 8. ágúst 2018 breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 sem samþykkt var í borgarráði 26. apríl 2018.

Í breytingunni felst að landnotkun á 2,4 ha opnu svæði milli Hraunbæjar og Bæjarháls breytist í íbúðarbyggð, fyrir um 200 íbúðir, þ.e. reitur nr. 60 á mynd 13 og stækkar þá íbúðarsvæði ÍB45 sem þessu nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar hún hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.