Fréttir


3.9.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna athafnarsvæðis AT5 á Esjumelum

Skipulagsstofnun staðfesti 2. september 2019 breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 sem samþykkt var í borgarráði 20. júní 2019.

Í breytingunni felst að skilgreining landnotkunar er breytt á hluta athafnasvæðisins, AT5 á Esjumelum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.