Fréttir


4.9.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna miðsvæðis M2c-M2g, Múlar-Suðurlandsbraut

Skipulagsstofnun staðfesti 2. september 2019 breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, sem samþykkt var í borgarráði 4. júlí 2019.

Í breytingunni felst að sett eru viðmið um breytingu atvinnuhúsnæðis í íbúðarhúsnæði á svæði M2e.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.