Fréttir


25.9.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skagabyggðar vegna efnistöku í landi Hafna

Skipulagsstofnun staðfesti 21. september 2018 breytingu á Aðalskipulagi Skagabyggðar 2010-2030, sem samþykkt var í sveitarstjórn 3. september 2018.

Í breytingunni felst að 1,2 ha landbúnaðarsvæði í landi Hafna er breytt í efnistökusvæði ES-25 þar sem taka á allt að 7.000 m³ í malarslitlag á næstu árum.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.