Fréttir


7.3.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016, vegna Áshildarmýri, Sandholts og Kálfhóls

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. mars 2019, breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016 sem samþykkt var í sveitarstjórn 6. febrúar 2019.

Í breytingunni felst að frístundabyggð og að hluta til blönduð landnotkun í Áshildarmýri (F4), í Sandholti (F41) og í landi Kálfhóls breytist í íbúðarbyggðir fyrir samtals 31 íbúðarlóð.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.