Fréttir


13.6.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna breyttrar landnotkunar í Fossnesi

Skipulagsstofnun staðfesti, 11. júní 2019, breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016 sem samþykkt var í sveitarstjórn 3. október 2018.

Í breytingunni felst að 10 ha af frístundabyggð F30 er breytt í landbúnaðarsvæði þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu í tengslum við landbúnað.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.