Fréttir


  • Fitjar - staðfesting

3.8.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skorradalshrepps vegna niðurfellingar verslunar- og þjónustusvæðis í landi Fitja

Skipulagsstofnun staðfesti 2. ágúst 2018 breytingu á Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 1. mars 2018.

Í breytingunni felst að að 0,1 ha svæði fyrir verslun og þjónustu í landi Fitja er fellt út.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.