Fréttir


13.5.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skútustaðahrepps vegna Jarðbaðanna í Mývatnssveit

Skipulagsstofnun staðfesti, 9. maí 2019, breytingu á Aðalskipulagi Skútustaðahrepps 2011-2023 sem samþykkt var í sveitarstjórn 24. apríl 2019.

Breytingin felst í því að svæði fyrir þjónustustofnanir við Jarðböðin í Mývatnssveit er breytt í verslunar- og þjónustusvæði og stækkað frá því að vera 1,9 ha í 6,2 ha að stærð.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.