Fréttir


22.1.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Stykkishólms, Aðalgata 7

Skipulagsstofnun staðfesti þann 19. janúar 2018 breytingu á Aðalskipulagi Stykkishólms 2002-2022, sem samþykkt var í bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar 12. desember 2017.

Í breytingunni felst að landnotkun á lóðinni Aðalgata 7 er breytt úr íbúðarsvæði í miðsvæði. Gert er ráð fyrir gistiheimili í húsinu á lóðinni.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar hún hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.