Fréttir


30.5.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Stykkishólms vegna Reitarvegs

Skipulagsstofnun staðfesti þann 18. maí 2018 breytingu á Aðalskipulagi Stykkishólms 2002-2022, sem samþykkt var í bæjarstjórn 11. apríl 2018.

Í breytingunni felst að íbúðarsvæði við Reitarveg er stækkað og athafnasvæði minnkað sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.