Fréttir


27.2.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps vegna íbúðarbyggðar í landi Heiðarholts

Skipulagsstofnun staðfesti, 20. febrúar 2019, breytingu á Aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 3. september 2018.

Í breytingunni felst að landnotkun á 4,1 ha svæði í landi Heiðarholts er breytt úr landbúnaðarsvæði í íbúðarsvæði (ÍB 22).

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.