Fréttir


15.4.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna Árbæjar IV

Skipulagsstofnun staðfesti, 11. apríl 2019, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 28. febrúar 2019.

Í breytingunni felst að 10 ha landbúnaðarsvæði innan skilgreinds þéttbýlis í Árbæjarhverfi er breytt í íbúðarbyggðina Í3 Árbær IV. Gert er ráð fyrir 10-17 íbúðum á svæðinu.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.