Fréttir


6.12.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna Ingólfshvols

Skipulagsstofnun staðfesti, 3. desember 2018, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2010-2022, sem samþykkt var í bæjarráði 8. nóvember 2018.

Í breytingunni felst að á svæði fyrir verslun og þjónustu að Ingólfshvoli (V12) er bætt við heimild um gistingu fyrir allt að 50 manns.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.