Fréttir


3.4.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Þingeyjarsveitar vegna Árhóla 2

Skipulagsstofnun staðfesti 2. apríl 2019 breytingu á Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 21. febrúar 2019.

Í breytingunni felst að afmarkað er 3.364 m² svæði fyrir verslun og þjónustu (V-18) í landi Árhóla 2 í Laxárdal. Landbúnaðarsvæði minnkar sem því nemur. Heildar byggingarmagn á svæðinu verður 155 m².

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.