Staðfesting á breytingu aðalskipulagi Reykjavíkur vegna Gufuness
Skipulagsstofnun staðfesti, 31. október 2018, breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 sem samþykkt var í borgarráði 20. september 2018.
Í breytingunni felst að hluta iðnaðarsvæðis í Gufunesi er breytt í miðsvæði, þar sem þróuð verður blönduð byggð atvinnu- og íbúðarbyggðar.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.