Fréttir


5.7.2019

Staðfesting á óverulegri breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna landnotkunar við Lindarbraut 8, Laugarvatni

Skipulagsstofnun staðfesti, 3. júlí 2019, breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 9. maí 2019.

Í breytingunni felst að landnotkun á lóðinni Lindarbraut 8 á Laugarvatni er breytt úr íbúðarbyggð í samfélagsþjónustu.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.