Fréttir


  • Aðalskipulagsuppdráttur

10.11.2016

Stækkun flugvallar í landi Skaftafells 2/Freysness, í Sveitarfélaginu Hornafirði

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að stækkun flugvallar í landi Skaftafells 2/Freysness í Sveitarfélaginu Hornafirði skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 12. desember 2016.