Mál í kynningu


12.12.2016

Allt að 6.800 tonna framleiðsla á laxi í sjókvíum í Ísafjarðardjúpi

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

Kynningartími stendur frá 12. desember til 23. janúar 2017.

Háafell ehf. hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar. 

Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir. 

Frummatsskýrslan og viðaukar eru aðgengileg hér og á skrifstofum Ísafjarðarbæjar, Súðavíkurhrepps og Strandabyggðar, á Bæjar– og héraðsbókasafni Ísafjarðar, Bókasafni Súðavíkur, Héraðsbókasafni Strandasýslu, Skipulagsstofnun og í Þjóðarbókhlöðunni. 

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 23. janúar 2017 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.