Mál í kynningu


14.9.2017

Allt að 9,3 MW virkjun í Hverfisfljóti við Hnútu, Skaftárhreppi

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

Kynningartími er frá 21. september til 2. nóvember 2017

Ragnar Jónsson hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um allt að 9,3 MW virkjun í Hverfisfljóti við Hnútu.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 21. september 2017 til 2. nóvember 2017 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Skaftárhrepps, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. 

Frummatsskýrslan er aðgengileg hér.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 2. nóvember 2017 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.