Efnisnám kalkþörungasets í Ísafjarðardjúpi
Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu
Kynningartími stendur frá 25. ágúst til 9. október 2017.
Íslenska kalkþörungafélagið ehf. hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar. Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir.
Frummatsskýrslan er aðgengileg hér, í Safnahúsinu á Ísafirði, Skipulagsstofnun og í Þjóðarbókhlöðunni.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 9. október 2017 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.