Mál í kynningu


30.7.2019

Efnistaka úr hafsbotni í Hellisfirði í Norðfjarðarflóa, Fjarðabyggð

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu

Frestur til athugasemda er til 16. ágúst 2019.

Hafnarsjóður Fjarðabyggðar hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar efnistöku úr hafsbotni Hellisfjarðar í Norðfjarðarflóa, Fjarðabyggð.

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 16. ágúst 2019 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is