Mál í kynningu


24.5.2019

Framleiðsla Laxa fiskeldis á 3.800 tonnum af laxi í sjókvíum í Fáskrúðsfirði

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu

Frestur til athugasemda er til 11. júní 2019.

Laxar fiskeldi hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum framleiðslu á 3.800 tonnum af laxi í sjókvíum í Fáskrúðsfirði.

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 11. júní 2019 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.