Mál í kynningu


23.1.2017

Framleiðsluaukning um 7.600 tonn af laxi í Ísafjarðardjúpi á vegum Arctic Sea Farm

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu

Kynningartími stendur frá 23. janúar til 8. febrúar 2017 

Arctic Sea Farm hf. hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum framleiðsluaukningar um 7.600 tonn af laxi í Ísafjarðardjúpi.

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 8. febrúar 2017 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.