Mál í kynningu


13.2.2018

Landmótun kirkjugarðs í Úlfarsfelli, Reykjavík

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

  • Kirkjugarður Úlfarsfelli yfirlitsmynd

Kynningartími stendur frá 14. febrúar til 3. apríl 2018

Reykjavíkurborg hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar.

Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir.

Frummatsskýrslan og viðaukar eru aðgengileg hér, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 3. apríl 2018 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.