Mál í kynningu


30.3.2017

Landmótun fyrir kirkjugarð í Úlfarsfelli, Reykjavík

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun

Frestur til athugasemda er til 19. apríl 2017

Reykjavíkurborg hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum landmótunar fyrir kirkjugarð í hlíðum Úlfarsfells í Reykjavík. 

Tillagan er aðgengileg hér  og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 19. apríl 2017 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is