Mál í kynningu


20.3.2019

Móttöku-, brennslu- og orkunýtingarstöð úrgangsefna í Vestmannaeyjum

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu

  • Vestmannaeyjar-brennslustöð

Frestur til athugasemda er til 5. apríl 2019. 

Vestmannaeyjabær hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum móttöku-, brennslu- og orkunýtingarstöðvar í Vestmannaeyjum.

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 5. apríl 2019 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.